Entry: Jólin komin? Wednesday, November 01, 2006



Sæl veriði!

Hér sit ég í vinnunni, klukan er korter yfir 5 aðfaranótt miðvikudags og ég á 2 tíma og 45 mínútur eftir af vaktinnu. Það er ekkert að gera, bara 3 manneskjur sem checkuðu sig út í Flybusinn svo það er alls ekkert action í gangi. Ekki neitt!

En hvað tekur maður til bragð þegar það er svona ekkert að gera? Jú, maður leiðir hugann að einhverju öðru eins og til dæmis jólaskrauti sem er að poppa upp úti u allan bæ. Erum við ekki orðin svolítið klikk að vera að setja upp jólin í lok október? Voðalega liggur öllum á nú til dags. Ég man fyrir nokkrum árum þegar ég var lítil... maður var ekkert að stressa sig á jólaksrautinu fyrr en í fyrsta lagi 1.des þegar kveikt var á dgatalakerti og ég opnaði fyrsta gluggann í Jóladagatali Sjónvarpsins. Síðan kom aðventukransinn á réttum tíma og aðventuljósin. Síðan setti mamma stjörnu í gluggann minn því það er alltaf svo dimmt í desemberansinn. Síðan beið maður bara í ofvæni eftir jólunum. Jólaskrautinu fjölgaði jafnt og þétt, svo komu jólasveinarnir með mandarínur og happaþrennur og svo kom bomban á Þorláksmessu, jólatréð og allur sá pakki.
Þannig hef ég þetta enn þann dag í dag og líkar vel.
Hef enga þörf fyrir a' flýta mér að þessu, jólin koma ekkert fyrr þó ég skreyti í október/nóvember... Veit ekki með annað fólk en mér finnst voðalega fáir vera að njóta jólanna lengur. Jólin eru orðin keppni um hver er með mesta og besta matinn, flottustu pakkana, mesta ljósaksrautið og áfram þannig fram eftir götunum. Við ættum bara að slaka svolítið á og leyfa jólunum að koma til okkar. Taka "chill-pill" eins og maður segir.


En þetta var nú hugleiðing dagsins.
Ég er að reyna að komast til til New York með vinnunni. Það ætlar að ganga erfiðlega þar sem þau flýttu ferðinni og þá þarf ég að finna einhvern til að vinna fyrir mig. Það ætlar að reynast erfitt svo ég held ég verði bara að geyma Stóra Eplið þar til síðar.

Annars líður mér bara ágætlega á Klakanum. Fór í áhugasviðspróf uppí HÍ um daginn. Reynað finna út hvert ég ætti að stefna, hvar hugurinn liggur, svolítið spes að þurfa að taka próf til þess að vita hvað ég vil, en það voru sko alls ekki fáir sem tóku þetta próf með mér svo ég stend ekki ein í óvissunni. Mig langar síðan að drífa mig í Háskólann næsta haust. Láta eitthvað almennilegt verða úr mér, ha!

Lífið á Nordica er skemmtilegt. Það var staffadjamm sl föstudag. Fórum á smá fund fyrst, síðan var förðunarnámskeið og kínverskt nudd uppi á Loftleiðum. Þaðan fórum við endurnærð og hálfsvífandi biður á Silfur, veitingastaðinn á Hótel Borg. Þar fengum við gott í svanginn. Ég mæli eindregið með þessum stað ef þið viljið prófa eitthvað nýtt og framandi. Ég lét meira að segja plata mig í að borða reyktan ál!!! Hann var alveg merkilega bragðgóður skal ég segja ykkur! Ég sem er nú ekki beint aðalstuðningsmaður fisks. Eftir matinn var síðan farið á Hressingarskálann þar sem djammað var fram á rauða nótt. Endalaust gaman!

En nú er vinnuvika... er reyndar í fríi á laugardaginn þannig að ég kemst í afmæli til Valda. Það væri ótrúlega gaman ef ég kæmist. Ég er síðan að vinna í því að setja nýjar myndir inná netið, luma á alveg óvenju miklu núna...

En nú er þetta orðið nokkuð gott hjá mér, hef ekki látið heyra í mér svo lengi... vonandi lítur einhver ennþá á bloggið hjá manni ha...

Þangað til bæst, hafið það rosa gott!

Þóranna Hrönn

   4 comments

Thelmy
November 1, 2006   09:09 AM PST
 
JEY!!!!!!!!!!!!!! BLOGG!!!!!!!!

æji þú ert svo mikil músla..... :)

svo þurfum við eiginlega að hittast yfir kaffi á næstunni sko !

knúúúúúús til þín sætust!
Boggi
November 1, 2006   12:31 PM PST
 
Hefðir getað sparað þér pening bara með því að skrifa niður á blað hvað þú hefur mestan áhuga á... út frá því ættiru að egat dæmt um hvar áhuginn liggur... svona áhugasviðspróf eru álíka marktæk og persónuleikapróf =)
GK2#1
November 1, 2006   02:06 PM PST
 
vó undur og stór merki það er blogg í gangi, og jólin að fara að koma og alles stuð...
Tóta
November 2, 2006   01:45 AM PST
 
Thelma: Það verður pottþétt kaffi í næstu viku.. þá á ég frí aftur og þá ætla ég að fá svona ískaffi. :D Prófa sig áfram sko!! ;)

Boggi: ég hef ekki nógu mikið hugmyndaflug til að gera þetta sjálf...

Eyrún: Svarti tappinn!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments