|
Góðan og blessaðan daginn! Langt síðan ég hef látið heyra í mér, ha. 10. mars kom síðan Rannveig í heimsókn. Það var algjör snilld. Við spjölluðum heilmikið saman, fórum í sightseeing, djömmuðum með Sunnu og fleirum á stað sem heitir Frog, horfðum á 24 og Desperate housewifes og höfðum það gott. Rannveig verslaði síðan soldið, geggjuð stígvél og ótrúlega flotta kápu til dæmis. Mjög fínt mál. Hún fór síðan heim þann 16. Ég er búin að vera að prófa mig áfram í eldamennskunni í litla eldhúsinu mínu. Algjör snilld að vera með svona sitt eigið frímerkiseldhús! Kalla mig nokkuð góðan pasta- og kjúklingskokk núna. Reyndi að gera pottrétt um daginn með lambakjöti en kjötið hérna í Englandi er bara alls ekki gott. Keypti samt kjöt í dýrari flokknum en samt var það eins og að tyggja gúmmí... það kvöldið borðaði ég hrísgrjón með pottréttssósu, hehe. Nú bíð ég bara spennt eftir að mamma og Gulli komi. Þau koma um páskana og koma að sjálfsögðu með páskaegg ;) Ég ætla að sýna þeim svona hvað ég geri hérna, gefa þeim smá hjartaáfall með því að sýna þeim lífið í Camden... Sýna þeim kannski hvar ég bjó fyrst eftir jól og svo bara njóta þess að hafa þau hjá mér. Þetta verða spes páskar, bara 1 páskaegg... hehe. Ætli ég lifi það af? Hér úti er nefnilega ekkert súkkulaði sem jafnast á við Nóa mjólkursúkkulaði. Mikið búin að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að stofna eigin bissness, flytja inn súkkulaði, lakkrís, Coca Cola Light, Cheerios, mjólk, jógúrt og lambakjöt. Yrði örugglega rík á no time!! Já, um daginn þá fór einhver í sturtu hérna í húsinu sem endaði með því að eldhúsið fyrir neðan varð allt á floti!! 2-3 dögum síðar kom loksins pípulagningarmaður og hann sagði að það þyrfti að skipta um flísar á baðinu!!! Ha? Við í húsinu sko öll sammála um að það þyrfti að laga vatnsrörið... nýjar flísar myndu ekki laga neitt. En nei, hann stóð fastur á sínu og 2 dögum seinna kom flísamaðurinn og setti nýjar flísar... Það tók hann 3 daga að skipta um sturtubotn og setja 20 flísar á gólfið... Nú er hann búinn og ég held að enginn leggi í það að fara í sturtu. Bara fáránlegt... og þessir menn kalla sig atvinnumenn ?? Annars er alveg að koma vor hérna. Hlýnar með hverjum deginum. Sólin alltaf lengur á lofti og ég get barasta ekki beðið eftir að geta sest út í garð og farið í sólbað. Vona að þetta sumar verði jafn gott og sl sumar. Sól alla daga og yfir 30° hiti... Jæja nú verð ég að fara að hætta þessu blaðri. Tíminn að renna út á internetkaffinu... Vonandi heyri ég í ykkur flestum á MSN bráðlega. Annars má alltaf senda mér e-mail ef þið hafið einhverjar fréttir handa mér :D Þóranna. |
| Brynja March 27, 2006 10:13 PM PST eg veit ekki um hvað þú er að tala stelpa, Camden er fínasta hverfi!! | ||
| Elísabet March 28, 2006 10:47 AM PST Yesss, blogg!!! Og skemmtilegt var thad! Gott ad heyra ad thú ert á lífi og hefur thad gott :) | ||
| Helga March 28, 2006 10:51 AM PST Gott ad heyra loksins frá thér kona! | ||
| Silja March 28, 2006 07:56 PM PST Já ég tek undir það, mikið var! ;) Gott að allt gengur vel úti,vonandi kemstu svo heim sem fyrst í frí að kíkja á okkur. Hann Frosta er farið að langa að sjá þig ;) | ||
| Name March 30, 2006 07:14 PM PST Ég ætla nú bara að segja þér að mér þykir vænt um þig og ég hlakka mikið til að sjá þig :) Skemmtileg síða hjá þér húsamúsin mín :) | ||
| Sissa March 31, 2006 01:06 AM PST Phhh...ég sakna London. Þótt það sé alltaf svona íbúðarógeðsrugl þá er það ÆÐI!!! Ohhh....ég sakna þín líka Tóta mín!! Vonandi kemst ég bráðum að heimsækja þig!!! Love you | ||
| Name April 12, 2006 01:31 AM PDT Ég er á leiðinni :) Bara einn vinnudagur og svo langur fimmtudagsmorgun og þá flugferð til London :) Hlakka svo til að hitta þig , kveðjur að heiman ! | ||
| Leave a Comment: |