Entry: Long time no see!! Friday, February 24, 2006



Góðan og blessaðan daginn!

Hér í London er allt gott auðvitað. Búin að vera mjög upptekin sl vikur svo ég afsaka hér með bloggleti mína.
Systa og Mummi komu hingað yfir helgi, svo komu Sigrún og Eyrún sl helgi og nú eru Björk og þau fimmenningarnir í heimsókn. Svaðalega gaman!! Fékk fullt af íslenskum gúddís eins og Draum, Voga ídýfu, Síríus súkkulaði, flatkökur, ópal, Soprano, apótekaralakkrís, piparpúka, gammeldags lakkrís og svona. Svo líka Orville popp því það fæst ekki hér. Reyndar er ég búin að finna nokkrar búðir sem selja Prins Polo sem mér finnst über fyndið!!

Við systurnar versluðum þónokkuð og svo fórum við í risastóra Tesco í Tottenham og vá.. næsta hús við var IKEA... sjæsen, get svo svarið það að bara gula IKEA merkið framaná byggingunni er stærra heldur en IKEA búðin á Íslandi, svo risavaxið er húsið!!

Eyrún og Sigrún vesluðu helling meðan ég var að vinna, svo hittu þær vinnufélagana mína og við djömmuðum ærlega saman. Ótrúlega gaman.

Með Björk og þeim fer ég síðan á Lion King söngleikinn og meira versli versl. Maður kemst ekkert hjá því að versla sko þegar maður er í London, oniii :)

Ég er búin að eignast fullt af nýjum vinum gegnum vinnuna og það er bara algjör snilld. Nk. mánudag flyt ég síðan nær vinnunni eða til Harrow sem er shopping paradís líka. Bara gaman ha!!

Myndir? Já auðvitað!! Ég er búin að setja inn myndir frá jan og feb. Myndirnar frá Björk og þeim koma allar saman sér þegar þau fara á sunnudaginn.

Annars er ég bara óbó hress hérna úti. Búin að frétta af Reunioni Garðaskólasem verður 1.apríl og mig dauðlangar að reyna að safna fyrir hegarferð heim þá. Held það væri alveg geggjað að hitta allt pípúlið aftur.

Svo má náttúrulega ekki gleyma að hún Silja beibí er loksins búin að eiga alveg gullfallegan dreng sem hefur verið gefið nafnið Frosti. Hér má sjá síðuna hans.

Annað mjög mikilvægt: EYRÚN Á AFMÆLI Í DAG!!!! Til hamingju krúsímúsin mín!!
Jennie úr vinnunni á líka afmæli í dag OG..... SYSTA Á AFMÆLI Á MORGUN!!!
Svo á Björk frænka afmæli 27. Voðalegt afmælisflóð er þetta ha!! :D

En allavega. Þar sem ég er ein hérna núna þá er alltaf gaman að fá e-mail og símhringingar frá fólki heima... ef þið megið við því.. endilega látið heyra í ykkur dúllurnar mínar :* Sakna ykkar!!

   5 comments

Eyrún
February 24, 2006   01:28 PM PST
 
ÉG Á LÍKA AFMÆLI :O) OG ÞAÐ ER SVO GAMAN HJÁ MÉR...
Lilja
February 25, 2006   12:49 AM PST
 
Já Eyrún mín til hamingu með afmælið, vonandi voruð þig Sigrún ánægðar með Londonferðina ykkar. Það er búið að vera mkið um að vera hjá þér Þóranna min í þessum mánuði. En svo kemur kannski smá rólegur kafli og þá er gott að slaka á og safna kröftum fyrir næstu heimskóknarhrinu.... minn tími mun koma ! !
Sissa
March 12, 2006   10:10 PM PST
 
Hæææææ sæta mín!! Gaman að heyra hvað það er gaman í London, ég veit samt að það vantar hinar londongellurnar og ég væri alveg til í að vera lengur hjá þér! ég sakna þin krúsí! Vonandi kemur heim í apríl! Love sissa
Tóta
March 20, 2006   03:31 PM PST
 
apríl verdur tad nu ekki.... held eg se ekki ad komast a tetta reunion :(
Elísabet
March 26, 2006   01:38 PM PST
 
Er thetta ekki ordin nógu löng bloggpása? Rúmur mánudur! Láttu nú heyra í thér, stelpa :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments