Friday, February 10, 2006

Gaman gaman

Jæja pípúl!
Þegar mamma er farin að reka eftir mér að blogga þá þarf maður nú að fara að gera eitthvað, er það ekki?

Fyrst vil ég óska Silju og Dóra innilega til hamingju með hann Frosta litla. Hann er alveg æðislega sætur á myndunum og greinilega mjög stilltur. Hlakka til að sjá hann!

Síðan já... ummm.. Steinunn er farin heim aftur svo nú er ég bara ein að leita að herbergi til að leigja út sem er nær vinnunni heldur en þar sem ég bý núna. Ekki alveg að gera sig að vakna klukkan 5 á morgnana til að mæta í vinnuna klukkan 8...
Vinnufélagarnir eru alveg æðislegir og það er algjör snilld að vinna hérna. Búin að eignast helling af vinum sem ég held ég muni alveg þekkja áfram þó ég hætti hér. Bara snilld.

Svo er verið að plana reunion fyrir okkur sem útskrifuðumst úr Garðaskóla 2001.. úff 5 ár síðan við vorum í 10.bekk... THAT'S ALOT!! Hehe. Það er ss um páskana og vá hvað það væri mikil snilld að komast í smá skrepp heim og mæta á þetta reunion. Held það sé bara snilld. Ef þú varst með mér í GG og ekki búinn að heyra af þessu þá er linkur hérna á herlegheitin...

Habba sys kom í heimsókn með honum Mumma sínum sl helgi, við versluðum heil ósköp og borðuðum góðan mat.

Næsta þriðjudag koma Eyrún og Sigrún svo. Svo Björk og co þann 22. Ég var búin að segja ykkur frá því öllu ég veit, bara minna ykkur á það ef þið undirst yfir að ég sé ekki á MSN öllum stundum. Nú er maður svo upptekin, vinnandi manneskja skal ég segja ykkur ;)

Eníveis... á morgun er mér boðið á rugby league leik... Harlequins á móti St Helens í Twickenham. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, ikke?

Nú svo fékk ég bréf frá Helgu og Elísabetu í Danmörku. Gaman gaman!!

OG ég er komin með nýtt símanúmer: 0044-7833-632910.

Jæja.. get ekki haft þetta legnra, er í vinnunni, sorry hvað þetta er snubbótt. Myndir koma bráðlega. Ojáojá.


Thursday, January 26, 2006

Vinna eða heilaþvottur?

Hæ hó öllsömul!!

Nú er ég byrjuð að vinna :) Er reyndar í þjálfun núnaq en eftir svona 1-2 vikur get ég kallað mig Distributor Relations Representative með rentu.

Fyrir þá sem ekki hafa verið öpdeitaðir, þá er ég að vinna á höfuðstöðvum Herbalife í Evrópu í Nordic liðinu. Fólkið hérna eru bara Danir, Svíar, Finnar, Normenn og svo erum við 2 frá Íslandi. Allir eru á aldrinum 20-30 og það er alveg frábær andi hérna! Mjög skemmtilegt.
Þessa dagana sit ég bara og hlusta á símtöl og læri svör sem ég þarf að kunna, síðan er ég að skrá dót inná tölvu og svo er ég í og með þessu í þjálfun hjá Ann-Marie. Svokallaður heilaþvottur... Þarf að læra allt um starfsemi fyrirtækisins og geta svarað öllum hugsanlegum spurningum sem viðskiptavinir gæru spurt mig. Svakalega merkilegt starf sko skal ég segja ykkur.

Annars er lítið að frétta... Febrúar verður uppbókaður hjá mér, Systa er að koma, Eyrún og Sigrún eru líka að koma OG Björk frænka og þau öll 5 eru líka að koma. Svaðalegt alveg. Skemmtilegt að nefna það líka að einmitt HRafnhildur systir mín, Eyrún og Björk eiga afmæli í febrúar og AUÐVITAÐ koma þær til mín til að fagna afmælinu :D

Svo bíð ég líka í ofvæni eftir að litli kútur þeirra Silju og Dóra kíki í heiminn. GET EKKI BEÐIÐ!!! :D

Jæja... á 20 mín eftir af hádegismatnum, ætla að ná mér í vatn og prenta út myndir til að hafa á borðinu mínu hérna, eitthvað svo ópersónulegt þessa stundina hehe.

Hejdo!!


Monday, January 16, 2006

Skemmtilegheit

Hæ.. ég vil biðja alla sem lesa þetta að gera þetta.. ef það er ekki of mikil fyrirhöfn ;)

Þegar þú commentar....viltu þá svara þessum spurningum??0

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


Saturday, January 14, 2006

Steinunn komin og læti!

Halló palló!

Nú er ég ekki lengur ein og einmana hérna í London því hún Steinunn er komin. Jibbííí!! Hún hefur ekki komið áður til London svo ég fæ heiðurinn af því að leiða hana gegnum borgina og sýna henni helstu staði... Við erum langt á veg komin að skoða helstu pleisin, en eitthvað er nú eftir.. Hyde Park og Marble Arch kemur þegar það er gott veður. Svo eigum við eftir að fara í Augað... Og London Aquarium og Madamme Tussaud's safnið og eitthvað fleira. Allt bíður betra veðurs held ég. Rok, þoka og úði er ekki beint það skemmtilegasta þegar maður er að labba mikið.

Hérna eru hinsvegar myndir frá þessari túristaferð okkar... sameiginlegar myndir okkar Steinunnar má sjá hérna...

Annars er allt gott að frétta hjá mér sko...
Fór í Virgin Megastore í dag og keypti Casino myndina á tilboði... já já, hefði nú haldið að það væri í lagi, en nei! Ég var spurð um skilríki!!!! Jább, maður þarf að vera 18 til að kaupa þetta og ég sagðist vera 20 auðvitað og þetta væri mynd sem allir hefðu nú séð... þá varð afgreiðslukonan svo reið og frussaði framan í mig: "You can't tell the police that when you kill someone!!" -----HAAAAAAAA????? Mér fannst þetta svo hallærislegt að ég var bara með mesta hneykslissvip ever þegar ég sýndi henni skilríkin mín... hitt afgreiðslufólkið var líka að hlæja að henni... Ég bara puff... fékk 2 stimpla í saver kortið og labbaði út ;)

Alltaf gaman að komast betur að því að London er EKKI eins og gamla góða Ísland hehe. London er samt fín. :) London sjarmatröll, eins og Bubbi myndi kannski lýsa því ;)

Jæja... Ætlað láta þetta gott heita, er alveg uppgefin eftir allt þetta labb í gær og í dag. Nú er bara stefnan tekin á rólegheit. Ohh hvað það hljómar svakalega vel :D

See ya later :o)






Sunday, January 08, 2006

Spiderman, spiderman...

já haldiði ekki að ég sé Spiderman... fólk er búið að reyna að ná af honum myndum og þannig í laaaaaaangan tíma. Nú bara opinbera ég þetta.. ÉG ER SPIDERMAN!!!

Your results:
You are Spider-Man
Spider-Man
75%
Supergirl
73%
Superman
70%
The Flash
70%
Green Lantern
70%
Robin
68%
Wonder Woman
63%
Iron Man
60%
Catwoman
45%
Hulk
40%
Batman
35%
You are intelligent, witty,
a bit geeky and have great
power and responsibility.
Click here to take the Superhero Personality Test

Þar vitiði það :)

Annars er allt gott að frétta héðan úr Englandinu. Fór á svakalega gott djamm föstudagskvöld með Cassie. Römbuðum inná 'Old Skool kvöld' á McKlusky's í Kingston. Frábært kvöld alveg og góður Kjúklingja kebab þar á eftir.

Nú eru bara 4 dagar í Steinunni og þá get ég hætt að vera alein og yfirgefin, hehe. Samt ekki svo slæmt, ég hef nóg að gera við að horfa á hann Jack Bauer minn. Hann er bara snillingur. Er stödd í 4.seríunni núna... gífurlega spennó, ég hugsa um hann Jack minn allar stundir ;)

Í töluðum orðum ætla ég að horfa aðeins meira á hann, þessir þættir (24) eru barasta algjööör snilld!!!
Hafið það gott snúllumýslur! Ég sakna ykkar pínu sko... endilega kíkið í smá skrepp til London... þið hafið bara gott af því!!! :D

Góðan Bauer!! :D

 tihihi ;)



Currently watching:
24 - Season Four




Thursday, January 05, 2006

Londres

Já já... bara komið nýtt ár og alles!!

Áramótin voru bráðskemmtileg. Hófust opinberlega á mat heima, lambahryggur og læti. Svo var ís í eftirrétt. Síðan náði ég í Eyrúnu og Hildi og við fórum á Garðabæjarbrennuna. Komum alveg á réttum tíma til að sjá flugeldasýninguna og eitt árið enn unnum við Kópavoginn í flottheitunum. Okkar sýning var sko á 2 stöðum og læti!! Bara flott :)
Síðan fór ég heim og innan skamms hófst Skaupið sem var alveg ágætt. Ég hló að mislægu mistökunum, Bubba klippunum og Björgvini Franz í öllum hans gervum. Bara snillingur strákurinn, enda ekki langt að sækja fyndnina, Edda og Gísli Rúnar eru klassík.
Eftir Skaupið dúðaði ég mig og fór út að horfa á 600 milljónir brenna á himni.. það var alveg geggjað mikið af kökum og dóti í götunni minni svo ég var bara alveg í góðu stuði.
Síðan var skipt yfir í djammgallann og haldið í partý hjá Oddnýju. Þar var eitthvað fólk og ég vann Danna í Singstar.. Hann kemur aftur í sjónvarpið í dómaravalsþættinum í Idol. Ójá, ég vann hann!!!! Hahahaha. Síðan fór ég í bæinn með Eyrúnu og Kristínu. Fór á Áramótagleði Hressó sem var hresst!! Þar var fullt af MRingum og fleira fólki, bara stuuuuuð! Ég var ekki komin heim fyrr en klukkan 9 um morguninn se hlýtur að þýða að það var geggjað fjör!!

Nýársdagur var meira rólegur, spóla með Rannveigu og eithvað chill bara.
2.jan, síðasta daginn minn á landinu voru síðan nokkrar kaffúsaferðir, Smáralind og svo Friday's með pabba og brósa. Kom heim og pakkaði.. náði ekki að kveðja alla samt :( Silja mín, mér þykir geggjað leiðó að hafa ekki komist í heimsókn! Ég bæti þér það upp!!! Lofa!!

Síðan var bara flogið á þriðjudagsmorgun til Lundúnaborgar og hér er ég ss í nýju sætu íbúðinni og bíð í ofvæni eftir Steinunni sem kemur 12.jan. Er að leita að vinnu og svona, bara fjör.

Nú ætla ég samt að horfa á Flashdance sem er í sjónvarpinu... Góðar stundir!

P.S... nýjar myndir... :D


Saturday, December 31, 2005

Ársuppgjör

Halló rakettur og skotkökur!! Árið bara að verða búið?? Úfff... þetta er búið að vera skrýtið ár... Árið sem maður varð virkilega fullorðinn ef svo má að orði komast, hehe.

Árið mitt hófst á leiðinlegu breakuppi sem átti eftir að setja mark sitt á eiginlega fyrri partinn af árinu. Maður var náttúrulega svolítið down og svona en eins og með allt annað þá verður maður bara að bíta á jaxlinn. Eftir langa og stranga prófatörn í maí lauk ég Stúdentsprófi frá MR og vá hvað maður varð stór þá!!! Úff!!

Ég hélt áfram að vinna í Snælandvideo og átti síðan tvítugsafmæli í júlí. Mikið svakalega var það líka skemmtilegt. Í júlí tók ég líka þá ákvörðun að fara sem au-pair til Englands og eftir skemmtilegt partý á Prikinu þá flaug ég út 7.ágúst. Au-pair starfið var alveg ágætt, átti samt fleiri slæmar hliðar en góðar svo ég varð hálf fegin þegar mér var sagt að þau gætu ekki haft mig lengur vegna ýmissa vandamála hjá þeim. Þá tók ég þá ákvörðun að flytja til London með Steinunni vinkonu eftir áramót og við erum komnar með húsnæði og ætlum bara að vinna og hafa það gott fram á sumar/haust.

Á árinu 2005 eignaðist ég líka lítinn frænda sem er enn óskírður. Sigga og Brynjar eignuðust prinsinn 24. nóvember sl. Hann er bara æði!!

Ég vil þakka öllum í kringum mig alveg innilega fyrir allt sem þeir hafa gert fyrir mig... þá SÉRSTAKLEGA mömmu sem er búin að vera allra, allra bestasta mamma sem hægt er að óska sér. Svo fá Gulli, pabbi, Rannveig, Eyrún, Alli, Lindarbraut 24, Silja, Sigrún Þorsteins, Steinunn, Sissa, Bryndís og að ógleymdum jólasveininum, sérstakar þakkir fyrir að hafa verið alveg yndisleg og frábær í alla staði á liðnu ári. Mér þykir alveg óendanlega vænt um ykkur öll rúsínubollurnar mínar!!!

Nú ætla ég að fara að borða góðan mat og sprengja síðan gamla árið burt og taka á móti því nýja. Farið varlega í gleðinni, hittumst 2006!!! :* :* :* :*

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!!!!!!!!!


Tuesday, December 27, 2005

Hátíð ljóss og friðar

Gleðilega hátíð kæru vinir. Vonandi eru jólin búin að vera góð við ykkur og þið búin að borða mikið af góðum mat og opna nokkra pakka...

Jólin hjá mér hafa verið ósköp ljúf. Kom heim á klakann sl sunnudag og búin að hitta mikið af fólki sem er auðvitað alveg yndislegt!! Lífið er ofsalega gott við mig þessa dagana. Fór niður í bæ með Bryndísi á Þorláksmessu og svo var matarboð hjá Björk frænku í gærkvöldi. Í kvöld er ég síðan búin að vera hjá pabba. Mikið borðað úff... og pakkaflóðið í gær!! ómæ ómæ sko!!

Ég ætla að telja upp gjafirnar hérna og ef ég gleymi einhverju þá biðst ég innilega velvirðingar, málið er að ég var klukkutíma lengur en litlu frænkur mínar að opna þar sem ég fékk so mkið, þetta var alveg hálfpínlegt hehe! En já, nú hefst lesturinn!!

Frá mömmu og Gulla fékk ég Acer fartölvu, bol og peysu!!! Ójá, bara snilld! Nú get ég verið í beinu sambandi við ykkur frá nýja staðnum í Englandi!!

Síðan fékk ég fartölvutösku og vírusvörn frá ömmu og afa Sævó.

Kill Bill 1 og 2, Guerlain ilmvatn og pening frá pabba.

Baðbombu, ísskápssegul, hálsfesti og eyrnalokka frá Silju.

Eyrnalokkar frá Elísabetu.

Armband frá Helgu.

Náttföt frá Gunna frænda.

Kerti, reykelsapakka, fótboltasúkkulaði og 2 gloss frá Ellu frænku.

Handgerða krukku med tekatli frá Önnu Maríu frænku.

Garfield bók og sokka frá Steinunni.

Náttbuxur og DKNY ilmvatn frá Agnesi Ýr.

Body shop sturtusápu og skrúbb frá Kristínu Ýr.

2 geggjaða boli og Pippi Långstrump bók frá Rannveigu.

Bók og Body shop sturtusápu frá Sigrúnu.

Kassa með öllum nauðsynjum til að lifa frá Eyrúnu m.a. sprey til að sprauta uppí sig til að skilja mömmu sína, Breezer, kerti og spil, húmor, myndir og servíettur og mæliskeiðar, prakkarastrikabókina okkar sem við sömdum fyrir 6 árum í nýrri kápu og fullt, fullt meira!!

Bol frá Alla sem mamma var ekkert allt of hrifin af en mér finnstann snilld!!

Handáburð og sápu frá Björgu.

Body glitter krem og sokka frá Sissu og Bryndísi.

Lopapeysu frá Björk og Bjössa sem er rennd og geggjuð!!

Konfekt frá Snæland video.

Inniskó, magic og upptakara frá Kertasníki... táknrænt fyrir komandi daga??

Innrammaða fermingarmynd af Guðjóni brósa, þvílíkur sjarmör.

Johnny Depp dagatal 2006 frá Paulien í UK.

Naglaklippusett frá Elenu í UK.

Síðan á ég eftir að fá pakka frá Cassie og nokkrum fleirum í Englandinu. Eru þetta ekki bara ágæt pakkajól hjá mér? ójú ég held það bara :D

En já... Fór á djammið í gærkvöldi svaðalegt stuð. Fórum á Hressó og dönsuðum af okkur lappirnar í 3 tíma eða eitthvað, mjög gaman, ég fékk milljón óskalög og svo var dj-inn bara snilld!

Í dag fórum við Rannveig síðan saman í bólusetningu fyrir hettusóttinni (endilega, ef þú ert fædd/ur á árunum '81-'85 drífðu þig í fría bólusetningu!!) OG skipti geisladisk fyrir mömmu. Í kvöld eru það bara rólegheit, video held ég bara. :)

Eigið góðar stundir áfram! Reynum að hittast sem flest á áramótadjamminu, síðan er ég nefnilega bara farin út aftur!!


Saturday, December 17, 2005

Jólin, jólin, jólin koma brátt!!

Jæja... Ég kem heim ááááááá morguuuuuuuuuuuuun!!!

Úje! Újeeee!!!

Eyrún er búin að vera hjá mér síðan á þriðjudaginn. Geggjað gaman að sjá stelpuna aftur!! Versluðum alveg heilan helling, aðallega hún samt ;) Bara gott mál sko.

Fórum svo til London í gær með töskur og svona og hittum hana Auði systur hennar Eyrúnar. Hún er semsagt í stoppi í London yfir helgina frá Ítalíu. Förum allar saman heim á morgun, jahúúú :D

Ég er aftur í Molesey núna að passa og ef fólkið kemur ekkert voðalega seint þá tek ég estina aftur til London og hitti fólkið aftur. Systurnar eru með Jóni Ægi og Guðný sem er bara kúl!

Allavega, ég þarf að sinna James núna, í síðasta skipti!!

Mikið verður undarlegt að koma á klakann! Eins gott að ég sjái smá snjó! Og úff, ég mun líklega keyra bíl aftur... fyrsta skipti í rúma 5 mánuði!!! Já, passið ykkur bara.

Sjáumst hress um jólin! Éééééééég hlakka svo tiiiiiiil!!!


Friday, December 09, 2005

Áts.. that hurt!!

Comentaðu nafninu þínu og..

1.  Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2.  Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3.  Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4.  Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5.  Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6.  Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig 

7.  Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt

Já endilega skelliði nafninu ykkar í commentagluggann ef þið hafið áhuga á að ég segi ykkur svona sniðugt um ykkur sjálf ;)

_______________________________________________

með heitið á færslunni þá var hann Andriman að löðrunga mig rétt í þessu!! Já, og hann skammast sín sko ekki! Löðrungurinn felst í því að ég á að hripa niður 10 hluti sem ég myndi gera ef ég fengi að vera karlmaður í viku. Interesting... Welllll...


  1. Ég myndi fyrst prófa að raka á mér feisið og sjá hvort þetta sé virkilega svona leiðinlegt eins og margir segja... Og afsanna það í leiðinni...
  2. Síðan myndi ég auðvitað skella mér í karlaklefann í Laugum og skoða útsýnið...
  3. Næst myndi ég njóta þess að vera 3 sek að pissa
  4. Þar næst myndi ég sækja um á einhverjum stað sem ég hef unnið á áður í sama starf og gá hvort ég fengi hærri laun eða ekki
  5. Ég myndi fara á djammið og prófa hinar ýmsustu pikk-upp línur og sjá hvort ég yrði ekki langvinsælasti gæinn á svæðinu, þessi sem skilur stelpurnar..   :P
  6. Ég myndi taka myndir að sjálfum mér og segja öllum eftir vikuna að þetta sé my long lost twin brother
  7. Ég myndi fara á einhvern sport bar, horfa á Liverpool leik og njóta þess að öskra og æpa án þess að fá athygli allra á svæðinu
  8. hmmm.. hvað myndi ég gera næst? Njóta þess að vera ber að ofan hvar sem er og enginn kippir sér upp við það nema náttla að fólk starir aðdáunaraugum á sixpakkið ; )
  9. Ég myndi finna auðvelda leið til að greiða stutta hárið án þess að það þurfi að vera hart af ógisslegum gelklumpum og deila því meðal karlkys vina minna án þess að hljóma mjög gay
  10. Ég myndi reyna við Pál Óskar því hann er kóngurinn!!!  :oD

Já held þetta sé svona það sem mér dettur fyrst í hug...


Nú ég þarf víst að löðrunga einhvern núna... löðrunga Alla, Silju, Steinunni, Elvu og Jólasveininn



Previous Page Next Page





Tótus
Ýmislegt um mig...
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed