Nú er úti veður vott,
verður allt að klessu.
Ekki fær hann Grímur gott
að gifta sig í þessu.

Já það er óskemmtilegt veðrið úti... Stormviðvörun, engin flug til og frá landinu og björgunarsveitin situr vaktina á BYKO planinu í Kópavogi... just in case.
Annað sem tengist svona veðri er það að ég get ekki sofið í miklu roki. Ég sef illa og stutt og fæ martraðir. Þetta gerðist einmitt í nótt, sem er ástæða þess að ég er að blogga kl 6:30 á föstudagmorgni. Ég hef alltaf átt við þetta vandamál að stríða og ég hef ekki fundið neitt sem hjálpar mér að vinna úr þessu. Þetta hefur samt batnað örlítið með árunum, en þetta er alltaf jafn leiðinlegt.
Annars er það að frétta að ég er búin að láta hana Sollu klippa mig og lita, orðin svaka fín finnst mér...

Other than that... lítið að frétta. Fer í mat í kvöld til Sigrúnar :D Hún ætlar að elda eitthvað úr Encyclopedia about Italian cousine bókinni sinni. Það verður bara gott held ég!! :)
Nú er ég hætt í bili og ætla að einbeita mér að því að útiloka rokið og reyna að lúlla smá... zzzzZZzZzZZZZzzz...