Jæja... haldiði ekki að maður sé bara kominn heim. Jújú, ég er komin á Klakann, sem er bara ekki svo slæmt. Er búin að vera brjálað upptekin síðan ég kom heim sl föstudagskvöld. Laugardaginn kom fjölskyldan í kaffi og svo nokkrir vinir um kvöldið í grill. Fór svo til Bjössa í smá teiti og eftir það niðrí bæ með Rannveigu og Silju. Sunnudag fór ég á Sigur Rósar tónleikana á Klambratúni, algjör snilld!! Í gær var ég á spani um allan bæ, fartölvan í viðgerð, kíkti til tannsa og pantaði tíma hjá ýmsum læknum. Í dag fór ég svo til augnlæknis og að versla pínu. Kom í ljós að á einu ári þróaði ég 30° sjónskekkju... hvað á það að þýða?? Svo fór ég bara í sólbað auðvitað. Kíkti í ísbúðina með Kristínu og aðeins á lífið í Nauthólsvík, aldrei komið þangað áður þegar sólin skín, alveg hellingur af fólki!! Nú bíð ég bara spennt eftir að sjá Rockstar Supernova, ég hef aldrei séð þetta... sjá hvernig mér líst á Magna og allt dæmið. Á morgun ætla ég að ná í gleraugun mín, fara í morgunmat til Bjarkar frænku, reyna svo að finna mér skó og fara í klippingu. Síðan er bekkjarpartý, gamli 6.B að hittast, það verður örugglega svaka stuð. Á fimmtudaginn er svo göngugreining. Tjekka hvort ég þurfi innlegg.
Englandið er bara búið a vera voðalega gott við mig. Ég og Patrick erum búin að vera saman í hálft ár núna. Ég er svaka happy :D
Það var haldið hörku kveðjupartý handa mér áður en ég yfirgaf landið, fullt, fullt af fólki sem mætti, alveg eitthvað um 40 manns. Algjört æði.
Annars er ég bara hress og kát. Gaman að hitta alla aftur... finnst ég samt ekkert hafa verið lengi í burtu sko... var að pæla í því að það eru 14 mánuðir síðan ég útskrifaðist... það finnst mér langt í burtu... ´12 mánuðir síðan ég flutti til Englands, það er stutt... Voðalega furðulegt hvað tíminn líður hratt þegar maður hefur það gott og það er gaman.
Allavega, ég ætla að vera duglegri við að blogga núna þegar ég er komin með netið... set svo myndir inn þegar ég fæ fartölvuna úr viðgerð, borðtölvurnar 2 á heimilinu finna ekki myndavélina mína þegar ég sting henni í samband. Læt ykkur vita þegar myndirnar koma.
Bæjó í bili!!