Komiði sæl og blessuð!
Föstudagurinn langi er á enda og næstum komið að súkkulaðideginum mikla. Skrýtið samt að við köllum þennan föstudag langan þegar hér í Englandi kalla þeir hann góðan... Good Friday. Skil ekki alveg tenginguna þarna á milli. Hér er allt morandi í páskaliljum, bleikum blómum og bleikum trjám. Já, ég er ekki að grínast, trén hérna blómstra bleiku. Voðalega sumarlegt allt saman. Þessir páskar eru annars mjög sérstakir... á Skírdag komu mamma og Gulli til mín :D Við erum hér á hótelherberginu núna, keyptum internetaðgang svo ég gæti bloggað og svona, bara snilld :D
Þau komu með svo mikið dót handa mér, alltaf jólin þegar ég fæ gesti. Þau gáfu mér straujárn og vöfflujárn, eldhúsáhöld, fullt af nammi og meira að segja SS pylsur. Ooooo, svo gott :D :D Bara snilld. Er svona að sýna þeim lífið mitt hérna, Harrow, búðirnar, Uxbridge og fleiri búðir. Sá sem sagði að úthverfin í London væru ekki verslunarparadís veit ekki neitt. Bara gott að versla svona út úr öllum hávaðanum og látunum. Líka ódýrara.
Annars er voðalega lítið að frétta hjá mér. Ég er mjög hamingjusöm hérna. Patrick hjálpar mikið til, hann er algjör gullmoli. Bara snilld.
Ég ætla að reyna að setja myndir inn þessa helgi, það tekur bara svo svaðalega langan tíma, annars er ég að nota hótelnetið til að downloada LOST og D.H. Baaaaara sneelld. Svona er það að vera sjónvarpslaus, maður verður háður downloadi, hehe. Svaðalegt alveg!!
Vona nú að allt sé í gúddí hjá ykkur. Vona að vorsólin fari nú að skína á ykkur, hún skín svo mikið á mig að ég held ég sé að fara að fá freknur aftur. Þá er nú mikið sagt, alveg hætt að vera með freknur í framan eiginlega. Mjög skrítið, ég veit!!
Annars kom mamma með gulan páskadúk með sér svo við ætlum að hafa litla páskastemmingu saman. Mamma bakaði nefnilega brúntertu og kom með hana og krem tilbúið. Er hún ekki mikill snilli? Ojú!! Svo ef ég þekki þau rétt þá hafa þau komið með lítil páskaegg með sér og þetta verður bara voða kósý held ég. Borðum svo einhverja máltíð saman, líklega á veitingastað, ekki mikið um hamborgarhryggi hérna eða eitthvað þannig, ha.
Fengum ljúffengar steikur á Angus Steakhouse í kvöld annars. Ég fékk fille steik með bernaisse sósu, mmmmmmmm. Svooo gott!!! Ekki fengið kjöt í langan tíma heldur. Fyrir utan einhverja krappí borgara sko. Skemmtilegt. Löbbuðum líka mikið í dag, sáum alveg heilmikið, hálft Oxford Street, Soho Square, Piccadilly, Leicester Square, Trafalgar Square (sem er verið að laga svo maður sér ekki Nelson-súluna fyrir bláu neti og 24 hæða byggingarpöllum), Big Ben, London Eye og margt fleira skemmtilegt. Nú er mér illt í fótunum! Og bakinu því rúmið mitt á hótelinu er alveg það harðasta og óþægilegasta í heimi... en svona er það bara, gaman að vera með familíunni auðvitað! :)
Jæja, þetta er að verða sæmilegt hjá mér. Ég vona að ég fari að fá internet heim bráðum, þetta er orðið svolítið þreytandi þetta internetleysi. Vona svo að þið eigið gott páskafrí, borðið yfir ykkur af súkkulaði og hafið það dúndurgott!! :D
Knús og kossar,
Tóta litla tindilfætt.