Sunday, March 26, 2006

Halló halló!!!

Góðan og blessaðan daginn!

Langt síðan ég hef látið heyra í mér, ha.
Málið er að það var lokað á internetið í vinnunni, síðan flutti ég og á nýja pleisinu er ég ekki enn komin með internet. Það kemur samt vonandi bráðum.
Annars er margt skemmtilegt búið að gerast hjá mér... 1. mars fór ég á tónleika með Patrick. Sáum 3 hljómsveitir, Oli´N´Clive, Semifinalists og Absentee. Absentee voru hrein snilld og endaði kvöldið með því að ég keypti stuttermabol frá þeim og geisladiskinn þeirra.

10. mars kom síðan Rannveig í heimsókn. Það var algjör snilld. Við spjölluðum heilmikið saman, fórum í sightseeing, djömmuðum með Sunnu og fleirum á stað sem heitir Frog, horfðum á 24 og Desperate housewifes og höfðum það gott. Rannveig verslaði síðan soldið, geggjuð stígvél og ótrúlega flotta kápu til dæmis. Mjög fínt mál. Hún fór síðan heim þann 16.

Ég er búin að vera að prófa mig áfram í eldamennskunni í litla eldhúsinu mínu. Algjör snilld að vera með svona sitt eigið frímerkiseldhús! Kalla mig nokkuð góðan pasta- og kjúklingskokk núna. Reyndi að gera pottrétt um daginn með lambakjöti en kjötið hérna í Englandi er bara alls ekki gott. Keypti samt kjöt í dýrari flokknum en samt var það eins og að tyggja gúmmí... það kvöldið borðaði ég hrísgrjón með pottréttssósu, hehe.

Nú bíð ég bara spennt eftir að mamma og Gulli komi. Þau koma um páskana og koma að sjálfsögðu með páskaegg ;) Ég ætla að sýna þeim svona hvað ég geri hérna, gefa þeim smá hjartaáfall með því að sýna þeim lífið í Camden... Sýna þeim kannski hvar ég bjó fyrst eftir jól og svo bara njóta þess að hafa þau hjá mér. Þetta verða spes páskar, bara 1 páskaegg... hehe. Ætli ég lifi það af? Hér úti er nefnilega ekkert súkkulaði sem jafnast á við Nóa mjólkursúkkulaði. Mikið búin að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að stofna eigin bissness, flytja inn súkkulaði, lakkrís, Coca Cola Light, Cheerios, mjólk, jógúrt og lambakjöt. Yrði örugglega rík á no time!!
Svo þyrfti nú að kenna þessum Bretum að innstungurnar þeirra eru mjög úreltar og ljósaperurnar þeirra líka.

Já, um daginn þá fór einhver í sturtu hérna í húsinu sem endaði með því að eldhúsið fyrir neðan varð allt á floti!! 2-3 dögum síðar kom loksins pípulagningarmaður og hann sagði að það þyrfti að skipta um flísar á baðinu!!! Ha? Við í húsinu sko öll sammála um að það þyrfti að laga vatnsrörið... nýjar flísar myndu ekki laga neitt. En nei, hann stóð fastur á sínu og 2 dögum seinna kom flísamaðurinn og setti nýjar flísar... Það tók hann 3 daga að skipta um sturtubotn og setja 20 flísar á gólfið... Nú er hann búinn og ég held að enginn leggi í það að fara í sturtu. Bara fáránlegt... og þessir menn kalla sig atvinnumenn ??
Þá get ég kallað mig heilaskurðlækni ef eitthvað er!
Gaman að þessum útlendingum J
Ljósamaðurinn kom loksins til að laga loftljósið hjá mér.... Búin að bíða eftir honum síðan ég flutti hingað til Harrow. Nú get ég loksins séð eitthvað á morgnana og kvöldin... Eini tíminn sem ég er heima sko...

Annars er alveg að koma vor hérna. Hlýnar með hverjum deginum. Sólin alltaf lengur á lofti og ég get barasta ekki beðið eftir að geta sest út í garð og farið í sólbað. Vona að þetta sumar verði jafn gott og sl sumar. Sól alla daga og yfir 30° hiti...

Jæja nú verð ég að fara að hætta þessu blaðri. Tíminn að renna út á internetkaffinu... Vonandi heyri ég í ykkur flestum á MSN bráðlega. Annars má alltaf senda mér e-mail ef þið hafið einhverjar fréttir handa mér :D
Heyri í ykkur bráðlega krúsindúllurnar mínar, knús knús!!

Þóranna.



Currently listening to:
The Invitation
By Thirteen Senses



Tótus @ 20:03

Brynja
March 27, 2006   10:13 PM PST
 
eg veit ekki um hvað þú er að tala stelpa, Camden er fínasta hverfi!!
Elísabet
March 28, 2006   10:47 AM PST
 
Yesss, blogg!!! Og skemmtilegt var thad! Gott ad heyra ad thú ert á lífi og hefur thad gott :)
Helga
March 28, 2006   10:51 AM PST
 
Gott ad heyra loksins frá thér kona!
Silja
March 28, 2006   07:56 PM PST
 
Já ég tek undir það, mikið var! ;) Gott að allt gengur vel úti,vonandi kemstu svo heim sem fyrst í frí að kíkja á okkur. Hann Frosta er farið að langa að sjá þig ;)
Name
March 30, 2006   07:14 PM PST
 
Ég ætla nú bara að segja þér að mér þykir vænt um þig og ég hlakka mikið til að sjá þig :)
Skemmtileg síða hjá þér húsamúsin mín :)
Sissa
March 31, 2006   01:06 AM PST
 
Phhh...ég sakna London. Þótt það sé alltaf svona íbúðarógeðsrugl þá er það ÆÐI!!! Ohhh....ég sakna þín líka Tóta mín!! Vonandi kemst ég bráðum að heimsækja þig!!! Love you
Name
April 12, 2006   01:31 AM PDT
 
Ég er á leiðinni :)
Bara einn vinnudagur og svo langur fimmtudagsmorgun og þá flugferð til London :) Hlakka svo til að hitta þig , kveðjur að heiman !
~|~

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments





Previous Entry Home Next Entry





Tótus
Ýmislegt um mig...
   

<< March 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed