Góðan og blessaðan daginn!
Hér í London er allt gott auðvitað. Búin að vera mjög upptekin sl vikur svo ég afsaka hér með bloggleti mína.
Systa og Mummi komu hingað yfir helgi, svo komu Sigrún og Eyrún sl helgi og nú eru Björk og þau fimmenningarnir í heimsókn. Svaðalega gaman!! Fékk fullt af íslenskum gúddís eins og Draum, Voga ídýfu, Síríus súkkulaði, flatkökur, ópal, Soprano, apótekaralakkrís, piparpúka, gammeldags lakkrís og svona. Svo líka Orville popp því það fæst ekki hér. Reyndar er ég búin að finna nokkrar búðir sem selja Prins Polo sem mér finnst über fyndið!!
Við systurnar versluðum þónokkuð og svo fórum við í risastóra Tesco í Tottenham og vá.. næsta hús við var IKEA... sjæsen, get svo svarið það að bara gula IKEA merkið framaná byggingunni er stærra heldur en IKEA búðin á Íslandi, svo risavaxið er húsið!!
Eyrún og Sigrún vesluðu helling meðan ég var að vinna, svo hittu þær vinnufélagana mína og við djömmuðum ærlega saman. Ótrúlega gaman.
Með Björk og þeim fer ég síðan á Lion King söngleikinn og meira versli versl. Maður kemst ekkert hjá því að versla sko þegar maður er í London, oniii :)
Ég er búin að eignast fullt af nýjum vinum gegnum vinnuna og það er bara algjör snilld. Nk. mánudag flyt ég síðan nær vinnunni eða til Harrow sem er shopping paradís líka. Bara gaman ha!!
Myndir? Já auðvitað!! Ég er búin að setja inn myndir frá jan og feb. Myndirnar frá Björk og þeim koma allar saman sér þegar þau fara á sunnudaginn.
Annars er ég bara óbó hress hérna úti. Búin að frétta af Reunioni Garðaskólasem verður 1.apríl og mig dauðlangar að reyna að safna fyrir hegarferð heim þá. Held það væri alveg geggjað að hitta allt pípúlið aftur.
Svo má náttúrulega ekki gleyma að hún Silja beibí er loksins búin að eiga alveg gullfallegan dreng sem hefur verið gefið nafnið Frosti. Hér má sjá síðuna hans.
Annað mjög mikilvægt: EYRÚN Á AFMÆLI Í DAG!!!! Til hamingju krúsímúsin mín!!
Jennie úr vinnunni á líka afmæli í dag OG..... SYSTA Á AFMÆLI Á MORGUN!!!
Svo á Björk frænka afmæli 27. Voðalegt afmælisflóð er þetta ha!! :D
En allavega. Þar sem ég er ein hérna núna þá er alltaf gaman að fá e-mail og símhringingar frá fólki heima... ef þið megið við því.. endilega látið heyra í ykkur dúllurnar mínar :* Sakna ykkar!!