Wednesday, November 15, 2006

Kæru vinir og vandamenn

 
Nú er ég flutt á glænýja og seiðmagnaða síðu.
Þar verður ferskt blogg og skemmtilegheitin í fyrirrúmi.

Endilega lítið við.
Einnig mega þeir sem eru með link á mig á síðunum þeirra breyta honum...

Nýju síðuna finnurðu hér:    http://stelpukjani.blogspot.com

Takk fyrir! :)

Friday, November 10, 2006

Rok og rigning

Nú er úti veður vott,
verður allt að klessu.
Ekki fær hann Grímur gott
að gifta sig í þessu.

Já það er óskemmtilegt veðrið úti... Stormviðvörun, engin flug til og frá landinu og björgunarsveitin situr vaktina á BYKO planinu í Kópavogi... just in case.

Annað sem tengist svona veðri er það að ég get ekki sofið í miklu roki. Ég sef illa og stutt og fæ martraðir. Þetta gerðist einmitt í nótt, sem er ástæða þess að ég er að blogga kl 6:30 á föstudagmorgni. Ég hef alltaf átt við þetta vandamál að stríða og ég hef ekki fundið neitt sem hjálpar mér að vinna úr þessu. Þetta hefur samt batnað örlítið með árunum, en þetta er alltaf jafn leiðinlegt.

Annars er það að frétta að ég er búin að láta hana Sollu klippa mig og lita, orðin svaka fín finnst mér...

Other than that... lítið að frétta. Fer í mat í kvöld til Sigrúnar :D Hún ætlar að elda eitthvað úr Encyclopedia about Italian cousine bókinni sinni. Það verður bara gott held ég!! :)

Nú er ég hætt í bili og ætla að einbeita mér að því að útiloka rokið og reyna að lúlla smá... zzzzZZzZzZZZZzzz...


Monday, November 06, 2006

Tóta og fræga fólkið





Þessi maður, Eli Roth, er með alveg sick guðdómlega falleg augu. Ég er búin að vera að spjalla svolítið mikið við hann og bróður hans. Og svo kíktu hingað:

 Roger Bart (George Williams í apótekinu)


og Richard Burgi (Karl Mayer, fyrrverandi hennar Susan) 
Úr Desperate Housewives!!!!!

Stanislav Ianevsky Úr Harry Potter, Goblet of Fire,
Heater Matarazzo sem lék svo eftirminnilega í­ Scream 3...
Já og súpermódelið Vera Jordanova lí­ka.
Síðan var hellingur af fleiri leikurum... Hostel 2.. mæli með henni

Gaman í­ vinnunni sko! Þau eru hérna ásamt fleiru frægu fólki að taka upp myndina Hostel 2. Hún er tekin upp hérlendis og í Prag og fleiri stöðum en á að gerast í Slóvakíuu. Hún er að þeirra sögn miklu ógeðslegri en fyrri myndin og það er alveg skerí tilhugsun. Mér var boðið aukahlutverk en komst ekki vegna vinnu. Ég er enn að svekkja mig á því. Hefði alveg verið til í að vera með þeim í Bláa Lóninu!

Annars er ekkert að frétta... Bara vinna og vinna meira! Afmæli hjá Valda á laugardaginn og kannski kemst ég í­ staffaferðina á leikritið í Iðnó; Best í heimi!

Að lokum vil ég senda afmæliskveðju til hans Viktors.
Kallinn er 18 ára í dag, veiii!



Meira síðar!

Þóranna Hrönn


Wednesday, November 01, 2006

Jólin komin?

Sæl veriði!

Hér sit ég í vinnunni, klukan er korter yfir 5 aðfaranótt miðvikudags og ég á 2 tíma og 45 mínútur eftir af vaktinnu. Það er ekkert að gera, bara 3 manneskjur sem checkuðu sig út í Flybusinn svo það er alls ekkert action í gangi. Ekki neitt!

En hvað tekur maður til bragð þegar það er svona ekkert að gera? Jú, maður leiðir hugann að einhverju öðru eins og til dæmis jólaskrauti sem er að poppa upp úti u allan bæ. Erum við ekki orðin svolítið klikk að vera að setja upp jólin í lok október? Voðalega liggur öllum á nú til dags. Ég man fyrir nokkrum árum þegar ég var lítil... maður var ekkert að stressa sig á jólaksrautinu fyrr en í fyrsta lagi 1.des þegar kveikt var á dgatalakerti og ég opnaði fyrsta gluggann í Jóladagatali Sjónvarpsins. Síðan kom aðventukransinn á réttum tíma og aðventuljósin. Síðan setti mamma stjörnu í gluggann minn því það er alltaf svo dimmt í desemberansinn. Síðan beið maður bara í ofvæni eftir jólunum. Jólaskrautinu fjölgaði jafnt og þétt, svo komu jólasveinarnir með mandarínur og happaþrennur og svo kom bomban á Þorláksmessu, jólatréð og allur sá pakki.
Þannig hef ég þetta enn þann dag í dag og líkar vel.
Hef enga þörf fyrir a' flýta mér að þessu, jólin koma ekkert fyrr þó ég skreyti í október/nóvember... Veit ekki með annað fólk en mér finnst voðalega fáir vera að njóta jólanna lengur. Jólin eru orðin keppni um hver er með mesta og besta matinn, flottustu pakkana, mesta ljósaksrautið og áfram þannig fram eftir götunum. Við ættum bara að slaka svolítið á og leyfa jólunum að koma til okkar. Taka "chill-pill" eins og maður segir.


En þetta var nú hugleiðing dagsins.
Ég er að reyna að komast til til New York með vinnunni. Það ætlar að ganga erfiðlega þar sem þau flýttu ferðinni og þá þarf ég að finna einhvern til að vinna fyrir mig. Það ætlar að reynast erfitt svo ég held ég verði bara að geyma Stóra Eplið þar til síðar.

Annars líður mér bara ágætlega á Klakanum. Fór í áhugasviðspróf uppí HÍ um daginn. Reynað finna út hvert ég ætti að stefna, hvar hugurinn liggur, svolítið spes að þurfa að taka próf til þess að vita hvað ég vil, en það voru sko alls ekki fáir sem tóku þetta próf með mér svo ég stend ekki ein í óvissunni. Mig langar síðan að drífa mig í Háskólann næsta haust. Láta eitthvað almennilegt verða úr mér, ha!

Lífið á Nordica er skemmtilegt. Það var staffadjamm sl föstudag. Fórum á smá fund fyrst, síðan var förðunarnámskeið og kínverskt nudd uppi á Loftleiðum. Þaðan fórum við endurnærð og hálfsvífandi biður á Silfur, veitingastaðinn á Hótel Borg. Þar fengum við gott í svanginn. Ég mæli eindregið með þessum stað ef þið viljið prófa eitthvað nýtt og framandi. Ég lét meira að segja plata mig í að borða reyktan ál!!! Hann var alveg merkilega bragðgóður skal ég segja ykkur! Ég sem er nú ekki beint aðalstuðningsmaður fisks. Eftir matinn var síðan farið á Hressingarskálann þar sem djammað var fram á rauða nótt. Endalaust gaman!

En nú er vinnuvika... er reyndar í fríi á laugardaginn þannig að ég kemst í afmæli til Valda. Það væri ótrúlega gaman ef ég kæmist. Ég er síðan að vinna í því að setja nýjar myndir inná netið, luma á alveg óvenju miklu núna...

En nú er þetta orðið nokkuð gott hjá mér, hef ekki látið heyra í mér svo lengi... vonandi lítur einhver ennþá á bloggið hjá manni ha...

Þangað til bæst, hafið það rosa gott!

Þóranna Hrönn



Currently watching:
24 - Season Five
Staring Kiefer Sutherland



Saturday, September 23, 2006

Nei vá! Blogg?

Já komiði öllsömul heil og sæl! Spurning hvort maður láti ekki af því að blogga pínulítið.

Ég er bara búin að vera svo hrikalega upptekin síðan ég byrjaði að vinna að það er bara ekkert eðlilegt.

Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég að vinna í móttökunni á Nordica hoteli. Það er ofsalega fínt bara skal ég segja ykkur. Er að vinna næturvaktir, frá kl 20-8 7 nætur í röð og svo fæ ég 7 daga frí. Þetta er önnur vikan sem ég vinn svona næturvaktir og síðasta vika var alveg frí. Nei ég tók reyndar aukavakt þarna á miðvikudeginum.

En síðustu helgi skellti ég mér til Eyja. Gisti heima hjá Andra, voða næs. Fór í partý hjá Laua, afmæli hjá Evu Maríu og svo á Sálarball. Það var geggjaðslega skemmtilegt og Andri tók myndir fyrir mig þar sem mín vél var batteríslaus. L

 

Annars er ég búin að setja myndir á netið, bæði frá síðustu dögunum mínum í UK og svo fyrstu dögunum aftur á Klakanum. Hér er svo linkur á þær.

 

Annars er ég bara að klára þessa vinnutörn og verð afskaplega hamingjusöm þegar ég fæ vikufrí sem hefst kl 8 á mánudagsmorguninn og lýkur kl 20 mánudagskvöldið eftir það. Gleði gleði!!! J

Ef þið hafið eitthvað skemmtilegt fyrir stafni í næstu viku þá er ég geim í allt!! J

 

Endilega látið í ykkur heyra!

 

Í leiðinni vil ég óska Elvu, Stíg og Úlfi til hamingju með litlu dúlluna þeirra.

 

Ný síða er síðan í vinnslu!


Tuesday, August 01, 2006

Hó hó hó!!

Jæja... haldiði ekki að maður sé bara kominn heim. Jújú, ég er komin á Klakann, sem er bara ekki svo slæmt. Er búin að vera brjálað upptekin síðan ég kom heim sl föstudagskvöld. Laugardaginn kom fjölskyldan í kaffi og svo nokkrir vinir um kvöldið í grill. Fór svo til Bjössa í smá teiti og eftir það niðrí bæ með Rannveigu og Silju. Sunnudag fór ég á Sigur Rósar tónleikana á Klambratúni, algjör snilld!! Í gær var ég á spani um allan bæ, fartölvan í viðgerð, kíkti til tannsa og pantaði tíma hjá ýmsum læknum. Í dag fór ég svo til augnlæknis og að versla pínu. Kom í ljós að á einu ári þróaði ég 30° sjónskekkju... hvað á það að þýða?? Svo fór ég bara í sólbað auðvitað. Kíkti í ísbúðina með Kristínu og aðeins á lífið í Nauthólsvík, aldrei komið þangað áður þegar sólin skín, alveg hellingur af fólki!! Nú bíð ég bara spennt eftir að sjá Rockstar Supernova, ég hef aldrei séð þetta... sjá hvernig mér líst á Magna og allt dæmið. Á morgun ætla ég að ná í gleraugun mín, fara í morgunmat til Bjarkar frænku, reyna svo að finna mér skó og fara í klippingu. Síðan er bekkjarpartý, gamli 6.B að hittast, það verður örugglega svaka stuð. Á fimmtudaginn er svo göngugreining. Tjekka hvort ég þurfi innlegg.

Englandið er bara búið a vera voðalega gott við mig. Ég og Patrick erum búin að vera saman í hálft ár núna. Ég er svaka happy :D
Það var haldið hörku kveðjupartý handa mér áður en ég yfirgaf landið, fullt, fullt af fólki sem mætti, alveg eitthvað um 40 manns. Algjört æði.

Annars er ég bara hress og kát. Gaman að hitta alla aftur... finnst ég samt ekkert hafa verið lengi í burtu sko... var að pæla í því að það eru 14 mánuðir síðan ég útskrifaðist... það finnst mér langt í burtu... ´12 mánuðir síðan ég flutti til Englands, það er stutt... Voðalega furðulegt hvað tíminn líður hratt þegar maður hefur það gott og það er gaman.

Allavega, ég ætla að vera duglegri við að blogga núna þegar ég er komin með netið... set svo myndir inn þegar ég fæ fartölvuna úr viðgerð, borðtölvurnar 2 á heimilinu finna ekki myndavélina mína þegar ég sting henni í samband. Læt ykkur vita þegar myndirnar koma.

Bæjó í bili!!


Wednesday, June 14, 2006

HALLO

Bara láta ykkur vita ad eg er enn á lifi. Er bara ekki med internet og tad er erfitt ad komast a netid. Sakna ykkar allra!!!

Saturday, April 15, 2006

Páskablogg

Komiði sæl og blessuð!
Föstudagurinn langi er á enda og næstum komið að súkkulaðideginum mikla. Skrýtið samt að við köllum þennan föstudag langan þegar hér í Englandi kalla þeir hann góðan... Good Friday. Skil ekki alveg tenginguna þarna á milli. Hér er allt morandi í páskaliljum, bleikum blómum og bleikum trjám. Já, ég er ekki að grínast, trén hérna blómstra bleiku. Voðalega sumarlegt allt saman. Þessir páskar eru annars mjög sérstakir... á Skírdag komu mamma og Gulli til mín :D Við erum hér á hótelherberginu núna, keyptum internetaðgang svo ég gæti bloggað og svona, bara snilld :D
Þau komu með svo mikið dót handa mér, alltaf jólin þegar ég fæ gesti. Þau gáfu mér straujárn og vöfflujárn, eldhúsáhöld, fullt af nammi og meira að segja SS pylsur. Ooooo, svo gott :D :D Bara snilld. Er svona að sýna þeim lífið mitt hérna, Harrow, búðirnar, Uxbridge og fleiri búðir. Sá sem sagði að úthverfin í London væru ekki verslunarparadís veit ekki neitt. Bara gott að versla svona út úr öllum hávaðanum og látunum. Líka ódýrara.
Annars er voðalega lítið að frétta hjá mér. Ég er mjög hamingjusöm hérna. Patrick hjálpar mikið til, hann er algjör gullmoli. Bara snilld.
Ég ætla að reyna að setja myndir inn þessa helgi, það tekur bara svo svaðalega langan tíma, annars er ég að nota hótelnetið til að downloada LOST og D.H. Baaaaara sneelld. Svona er það að vera sjónvarpslaus, maður verður háður downloadi, hehe. Svaðalegt alveg!!

Vona nú að allt sé í gúddí hjá ykkur. Vona að vorsólin fari nú að skína á ykkur, hún skín svo mikið á mig að ég held ég sé að fara að fá freknur aftur. Þá er nú mikið sagt, alveg hætt að vera með freknur í framan eiginlega. Mjög skrítið, ég veit!!
Annars kom mamma með gulan páskadúk með sér svo við ætlum að hafa litla páskastemmingu saman. Mamma bakaði nefnilega brúntertu og kom með hana og krem tilbúið. Er hún ekki mikill snilli? Ojú!! Svo ef ég þekki þau rétt þá hafa þau komið með lítil páskaegg með sér og þetta verður bara voða kósý held ég. Borðum svo einhverja máltíð saman, líklega á veitingastað, ekki mikið um hamborgarhryggi hérna eða eitthvað þannig, ha.
Fengum ljúffengar steikur á Angus Steakhouse í kvöld annars. Ég fékk fille steik með bernaisse sósu, mmmmmmmm. Svooo gott!!! Ekki fengið kjöt í langan tíma heldur. Fyrir utan einhverja krappí borgara sko. Skemmtilegt. Löbbuðum líka mikið í dag, sáum alveg heilmikið, hálft Oxford Street, Soho Square, Piccadilly, Leicester Square, Trafalgar Square (sem er verið að laga svo maður sér ekki Nelson-súluna fyrir bláu neti og 24 hæða byggingarpöllum), Big Ben, London Eye og margt fleira skemmtilegt. Nú er mér illt í fótunum! Og bakinu því rúmið mitt á hótelinu er alveg það harðasta og óþægilegasta í heimi... en svona er það bara, gaman að vera með familíunni auðvitað! :)

Jæja, þetta er að verða sæmilegt hjá mér. Ég vona að ég fari að fá internet heim bráðum, þetta er orðið svolítið þreytandi þetta internetleysi. Vona svo að þið eigið gott páskafrí, borðið yfir ykkur af súkkulaði og hafið það dúndurgott!! :D

Knús og kossar,
Tóta litla tindilfætt.


Sunday, March 26, 2006

Halló halló!!!

Góðan og blessaðan daginn!

Langt síðan ég hef látið heyra í mér, ha.
Málið er að það var lokað á internetið í vinnunni, síðan flutti ég og á nýja pleisinu er ég ekki enn komin með internet. Það kemur samt vonandi bráðum.
Annars er margt skemmtilegt búið að gerast hjá mér... 1. mars fór ég á tónleika með Patrick. Sáum 3 hljómsveitir, Oli´N´Clive, Semifinalists og Absentee. Absentee voru hrein snilld og endaði kvöldið með því að ég keypti stuttermabol frá þeim og geisladiskinn þeirra.

10. mars kom síðan Rannveig í heimsókn. Það var algjör snilld. Við spjölluðum heilmikið saman, fórum í sightseeing, djömmuðum með Sunnu og fleirum á stað sem heitir Frog, horfðum á 24 og Desperate housewifes og höfðum það gott. Rannveig verslaði síðan soldið, geggjuð stígvél og ótrúlega flotta kápu til dæmis. Mjög fínt mál. Hún fór síðan heim þann 16.

Ég er búin að vera að prófa mig áfram í eldamennskunni í litla eldhúsinu mínu. Algjör snilld að vera með svona sitt eigið frímerkiseldhús! Kalla mig nokkuð góðan pasta- og kjúklingskokk núna. Reyndi að gera pottrétt um daginn með lambakjöti en kjötið hérna í Englandi er bara alls ekki gott. Keypti samt kjöt í dýrari flokknum en samt var það eins og að tyggja gúmmí... það kvöldið borðaði ég hrísgrjón með pottréttssósu, hehe.

Nú bíð ég bara spennt eftir að mamma og Gulli komi. Þau koma um páskana og koma að sjálfsögðu með páskaegg ;) Ég ætla að sýna þeim svona hvað ég geri hérna, gefa þeim smá hjartaáfall með því að sýna þeim lífið í Camden... Sýna þeim kannski hvar ég bjó fyrst eftir jól og svo bara njóta þess að hafa þau hjá mér. Þetta verða spes páskar, bara 1 páskaegg... hehe. Ætli ég lifi það af? Hér úti er nefnilega ekkert súkkulaði sem jafnast á við Nóa mjólkursúkkulaði. Mikið búin að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að stofna eigin bissness, flytja inn súkkulaði, lakkrís, Coca Cola Light, Cheerios, mjólk, jógúrt og lambakjöt. Yrði örugglega rík á no time!!
Svo þyrfti nú að kenna þessum Bretum að innstungurnar þeirra eru mjög úreltar og ljósaperurnar þeirra líka.

Já, um daginn þá fór einhver í sturtu hérna í húsinu sem endaði með því að eldhúsið fyrir neðan varð allt á floti!! 2-3 dögum síðar kom loksins pípulagningarmaður og hann sagði að það þyrfti að skipta um flísar á baðinu!!! Ha? Við í húsinu sko öll sammála um að það þyrfti að laga vatnsrörið... nýjar flísar myndu ekki laga neitt. En nei, hann stóð fastur á sínu og 2 dögum seinna kom flísamaðurinn og setti nýjar flísar... Það tók hann 3 daga að skipta um sturtubotn og setja 20 flísar á gólfið... Nú er hann búinn og ég held að enginn leggi í það að fara í sturtu. Bara fáránlegt... og þessir menn kalla sig atvinnumenn ??
Þá get ég kallað mig heilaskurðlækni ef eitthvað er!
Gaman að þessum útlendingum J
Ljósamaðurinn kom loksins til að laga loftljósið hjá mér.... Búin að bíða eftir honum síðan ég flutti hingað til Harrow. Nú get ég loksins séð eitthvað á morgnana og kvöldin... Eini tíminn sem ég er heima sko...

Annars er alveg að koma vor hérna. Hlýnar með hverjum deginum. Sólin alltaf lengur á lofti og ég get barasta ekki beðið eftir að geta sest út í garð og farið í sólbað. Vona að þetta sumar verði jafn gott og sl sumar. Sól alla daga og yfir 30° hiti...

Jæja nú verð ég að fara að hætta þessu blaðri. Tíminn að renna út á internetkaffinu... Vonandi heyri ég í ykkur flestum á MSN bráðlega. Annars má alltaf senda mér e-mail ef þið hafið einhverjar fréttir handa mér :D
Heyri í ykkur bráðlega krúsindúllurnar mínar, knús knús!!

Þóranna.



Currently listening to:
The Invitation
By Thirteen Senses



Friday, February 24, 2006

Long time no see!!

Góðan og blessaðan daginn!

Hér í London er allt gott auðvitað. Búin að vera mjög upptekin sl vikur svo ég afsaka hér með bloggleti mína.
Systa og Mummi komu hingað yfir helgi, svo komu Sigrún og Eyrún sl helgi og nú eru Björk og þau fimmenningarnir í heimsókn. Svaðalega gaman!! Fékk fullt af íslenskum gúddís eins og Draum, Voga ídýfu, Síríus súkkulaði, flatkökur, ópal, Soprano, apótekaralakkrís, piparpúka, gammeldags lakkrís og svona. Svo líka Orville popp því það fæst ekki hér. Reyndar er ég búin að finna nokkrar búðir sem selja Prins Polo sem mér finnst über fyndið!!

Við systurnar versluðum þónokkuð og svo fórum við í risastóra Tesco í Tottenham og vá.. næsta hús við var IKEA... sjæsen, get svo svarið það að bara gula IKEA merkið framaná byggingunni er stærra heldur en IKEA búðin á Íslandi, svo risavaxið er húsið!!

Eyrún og Sigrún vesluðu helling meðan ég var að vinna, svo hittu þær vinnufélagana mína og við djömmuðum ærlega saman. Ótrúlega gaman.

Með Björk og þeim fer ég síðan á Lion King söngleikinn og meira versli versl. Maður kemst ekkert hjá því að versla sko þegar maður er í London, oniii :)

Ég er búin að eignast fullt af nýjum vinum gegnum vinnuna og það er bara algjör snilld. Nk. mánudag flyt ég síðan nær vinnunni eða til Harrow sem er shopping paradís líka. Bara gaman ha!!

Myndir? Já auðvitað!! Ég er búin að setja inn myndir frá jan og feb. Myndirnar frá Björk og þeim koma allar saman sér þegar þau fara á sunnudaginn.

Annars er ég bara óbó hress hérna úti. Búin að frétta af Reunioni Garðaskólasem verður 1.apríl og mig dauðlangar að reyna að safna fyrir hegarferð heim þá. Held það væri alveg geggjað að hitta allt pípúlið aftur.

Svo má náttúrulega ekki gleyma að hún Silja beibí er loksins búin að eiga alveg gullfallegan dreng sem hefur verið gefið nafnið Frosti. Hér má sjá síðuna hans.

Annað mjög mikilvægt: EYRÚN Á AFMÆLI Í DAG!!!! Til hamingju krúsímúsin mín!!
Jennie úr vinnunni á líka afmæli í dag OG..... SYSTA Á AFMÆLI Á MORGUN!!!
Svo á Björk frænka afmæli 27. Voðalegt afmælisflóð er þetta ha!! :D

En allavega. Þar sem ég er ein hérna núna þá er alltaf gaman að fá e-mail og símhringingar frá fólki heima... ef þið megið við því.. endilega látið heyra í ykkur dúllurnar mínar :* Sakna ykkar!!



Currently listening to:
Whatever People Say I Am Thats What I Am Not
By Arctic Monkeys




Next Page





Tótus
Ýmislegt um mig...
   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed